Ađalvalmynd

Könnun

Veturinn fer í..

Auglýsing

Leikur dagsins

Leit

punktar

17. september 2006 klukkan 02:06

Jájájá.. ég hef ekkert að gera þannig að ég ætla að koma með smá punktablogg hérna.. segja fólki hvað hefur drifið á mína daga undanfarið og þessháttar..

Busaballið fyrir tveimur vikum var helvíti skemmtilegt. Tókst vel til með nýju reglurnar. Ballið var frá 11-2 og var það   bara fínt, þá gat maður farið á krúsina eftir ballið og djammað þar til lokunar.

Einn ónefndur hálviti tók sig til og lamdi faðir minn í hausinn með vodkapela þegar pabbi var að segja honum að fara frá dyrunum sem gengið var inn um á ballið. Hann er hálfviti! 

Ég fór í djammpásu eftir það djamm. Hún stóð yfir eina helgi.

Ég er byrjaður að vinna sem bouncher núna á Krúsinni. Búinn að vinna þrjú kvöld og er það helvíti fínt.

Ég fór í Póker í gær. Ég, Bjarni, Unnþór, Baldur þjálfari, Guðni Guðna legend í körfubolta og Jói Ólafs spiluðum heima hjá Guðna. Djöfull var gaman.

Eftir pókerinn fór ég heim til Helgu Margrétar óléttu í smá stund þar sem stelpurnar voru að spjalla og fá sér smá sjúss. Ég joinaði þær og héldum við svo á Krúsina. Stelpurnar voru alveg skelfilegar, sátu bara við borðið að spjalla í staðinn fyrir að vera dansa. Ótrúlegt hvað þetta lið þarf mikið að spjalla alltaf. Ég lýsi yfir miklum vonbrigðum með þær að geta ekki dansað smá þegar ég get loksins djammað.

Ég kom heim klukkan tæplega 6 í morgun og ætlaði að vinna klukkan 8. En ótrúlegt en satt þá meikaði ég ekki að mæta.

Ég er að fara vinna á krúsinni í kvöld þegar allir eru að fara að djamma. Langar ógeðslega mikið að djamma :(

Við erum loksins að fá liðið okkar saman í KFÍ. Pólverji sem kemur á fimmtudaginn og svo styttist í makedónann og serbann. Þannig að 1/3 af liðinu vera útlendingar. Shit!

Strákurinn er í þremur vinnum núna, með skólanum. Vinn á daginn eftir skóla í Ágúst og Flosa að smíða fram að æfingu. Svo krúsinni á helgum og fernandos á helgum og einn dag í viku að kvöldi til. Ég fer að vinna klukkan 11 í fyrramálið á Fernandos þannig að það er kannski fínt að ég sé ekki að fara að fá mér öl.

En ég nenni ekki meiru. Hvort sem er ekki margir sem eru að lesa því ég er svo skelfilega latur að blogga.
En ég bendi ykkur bara á hina síðuna sem ég er með í.. http://blog.central.is/grillidather !

Ţórir Guđmundsson

Busun

30. ágúst 2006 klukkan 19:03
Já fólk er eitthvað að röfla yfir því að ég bloggi sjaldan.. ég bara nenni því ekki. Það er svosum nóg að bloggum að lesa þannig að ég held að ég dragi mig í hlé í smá stund eftir þetta blogg.
En busunin er komin i gang í skólanum og glöggir lesendur átta sig á því að ég er í 3. bekk og auðvitað eru 3. bekkingar að busa einsog alltaf. Ég og Gunnar Jóns erum búnir að vera öflugir í því að kvelja greyin sem eru nýnemar. En samt megum við afskaplega lítið gera þannig að við erum eiginlega bara góð við þau. En busun er ógeðslega skemmtileg og ég nenni ekki að blogga lengur.. þannig að ég er farinn á busafund eftir smá stund!
BleBle..
Ţórir Guđmundsson

Nafniđ mitt..

21. ágúst 2006 klukkan 03:39
Fann hérna magnað helvíti.. hvað stafirnir i nafninu þýða.. get ekki verið annað en sáttur við mina þyðingu :)

Þ: You´re fkn hot
O: You love foreplay
R: You are beautiful, and sexy
I: You Hate Liers
R: You are beautiful, and sexy

hérna er svo allir stafirnir.. ég mundi ekki taka mark á þessu ef þetta væri eitthvað slæmt, en þetta passar svo helvíti vel við mig maður :P

A: You have trouble trusting people
B: You are always fun when it comes to meeting new people
C: youre wild and crazy
D: You are popular with all types of people
E: A Hottie
F: People totally adore you
G: You are very friendly and understanding
H: You have a very good personality and good looks
I: You Hate Liers
J: Everyone loves you
K: You like to try new things
L: You always make other people smile when you smile
M: Success comes easily to you
N: You'r great in bed
O: You love foreplay
P: You are very friendly and understanding
Q: You are a hypocrite
R: You are beautiful, and sexy
S: People think you are so sexy
T: You are one of the best in bed
U: You are really chill
V: You are not judgemental
X: You never let people tell you what to do
Y: you make every experience great
Þ: You´re fkn hot
Æ: You are outgoing person
Ö: You´re wild in bed
Ţórir Guđmundsson

Nýtt blogg

19. ágúst 2006 klukkan 23:01

Það er verið að kvarta yfir bloggleysi hjá mér, ég sem hélt að enginn mundi lesa þessa síðu. En það er ekki mikið buið að gerast undanfarið fyrir utan fucked up djamm í gær. Ég er buinn að vera að vinna á fullu síðan ég kom heim frá Greece.. Ég og Einar Birkir vorum að búa til sparkvöll og er hann mjög fallegur, enda meistarasmiðir hér á ferð. Við unnum yfirleitt til 10 á kvöldin þannig að það var feitur launaseðill í gær og væntanlega nokkuð vígalegur líka á næsta föstudag, helvístis gott :) Í gær var það svo bara extreme makeover eftir vinnu, klipping og strípur og svo rakaði ég mig og allt.. það gerist ekki oft.. en svo fór ég að borða með helgu lind og svo var haldið út í dal hnífanna í lokað hnífsdælingapartý. Það var algjör snilld, gaman að hittast aftur og deila skemmtilegum sögum. Sagan sem stóð uppúr var sagan af því þegar mér dömpað í fyrsta skiptið, 4 ára gömlum,  algjör snilld. En svo var Sálarball útí bolungarvík og var það bara fucked up djamm.. ekkert rosalega gaman. En maður verður að bæta upp fyrir það í kvöld :)

En jæja, ég ætla að fara að leggja mig aðeins, lofa að vera duglegri að blogga í framtíðinni :)

Ţórir Guđmundsson

Blámi minn :(

08. ágúst 2006 klukkan 03:19
Jahá.. ég var að koma heim eftir mjög vel heppnaða verzlunarmannahelgi sem byrjaði samt skelfilega!! Ég keyrði eftir vinnu á fimtudaginn og var kominn á Sauðárkrók allt í góðu geimi. Svo alltíeinu kemur olíuljós á bílinn.. ég náttla stoppaði og setti partýljósin á og byrjaði að stoppa fólk og biðja um olíu en enginn var með olíu á sér. EN eftir að ég var búinn að stoppa svona 20 bíla var loksins einn kall með olíu. Ég náttla smellti henni á og keyrði aftur að stað. En svo var komin vond lykt og olíuljósið komið aftur stuttu seinna. Þannig að ég stoppaði aftur og ákvað að fá bara far yfir á sigló ogsækja bilinn morguninn eftir. Við gerðum það og allt í góðu. Svo fór pabbi að kíkja á hvað hefði gerst og þá kom bara rosalegt gat á pönnuna og öll olían fossaðist útaf vélinni og vélin handónýt. Þannig að Blámi minn er bara ennþá á Sigló. En ég er sennilega buinn að fá nyja vel þannig að ég og pabbi förum aftur á sigló um næstu helgi og setjum nýju velina i. EN nóg af þessu rugli.. það var helvíti gaman á sigló. Fullt af fólki og kynntist ég mörgum aftur, krökkum sem ég lék mér með á yngri árum. Spútnik spiluðu á föstudaginn og laugardaginn. Þeir voru ekkert sérstakir fyrra kvöldið en svo voru þeir þokkalega öflugir laugardagskvöldið, það var eitt besta ball sem ég hef nokkurntímann farið á. Svo í gær var það bara Palli píka að trylla líðinn, það var helvíti gaman þar líka og hef ég aldrei verið eins ölvaður. Drakk ekkert smá mikið. Ég og óskar tókum sinhvor 11 skotin af Opal áður en við fórum á ballið og sagði það vel til sín á leiðinni heim áðan. Ég hélt að ég mundi aldrei meika það. Sérstaklega útaf því að ég var ennþá fullur þegar ég vaknaði, búinn að sofa í 4 tíma. En þetta var ógeðslega gaman! Síldarævintýrið á Sigló stendur alltaf fyrir sínu ;)

En ég ætla snemma í rumið svo ég geti nu unnið eitthvað á morgun.. bæbæ pípols :)
Ţórir Guđmundsson

SHit!

02. ágúst 2006 klukkan 04:47
Þetta er rosalegt. Ég er ekki búinn að eiga stund með sjálfum mér eftir að ég kom heim. Alltaf að hitta einhverja þegar ég er ekki að vinna. Djöfull er það gaman, loksins að hitta alla vinina aftur. En  þvímiður komast ekki allir að fyrir verslunarmannahelgina, en það verður að plana eftir þá helgi baraSvalur! (þetta var egóistalegt, shiiit)
En nóg um það. Verslunarmannahelgin á næstu grösum. Ég held til Siglufjarðar á fimmtudaginn eftir vinnu og Rakel litla fær far með mér. Ég held að maður taki bara eitt rosalegt djamm þarna, straight í allavega 3 daga. Ég verð að taka þetta mest út á þeirri helgi því maður verður að byrja að æfa fyrir komandi season svo maður fái að spila eitthvað, hoho. En annars er litla frænka mín búin að lofa garðpartýum í þvílíkum útileigustemmara, með gítar að syngja öll klassísku íslensku gömlu lögin, sú stemning hefur ekki brugðist hingað til og treysti ég á að þetta verðir svakalegt.

Ég byrjaði að vinna á mánudaginn aftur eftir 2 mánuði án þess að vinna. Og guð minn almáttugur hvað það er erfitt að byrja aftur, mig langar strax aftur í frí. Ég er alveg gjörsamlega uppgefinn og nenni engann veginn að vera að vinna. En samt reynir maður alltaf að vera að gera eitthvað því maður er að fá borgað og tíminn líður hægar annars, shhhiiit það er erfitt að vera þreyttur ungur drengur ! *Allir að vorkenna mér*

EN lagið sem ég var að tala um daginn.. kominn með einn frasa úr því. Það er: World, hold on... og svo kemur þessi massívi kafli, eða viðlagið. Geðveikt töff stef. Allir að reyna að kveikja á perunni hvaða lag þetta er.

En ég minni á svaðalegustu síðu seinni tíma: http://blog.central.is/grillidather !

Ekki meir í dag.
Ţórir Guđmundsson

Grikklandiđ búiđ

29. júlí 2006 klukkan 21:59
When you try your best, but you don't succeed
When you get what you want, but not what you need
When you feel so tired, but you can't sleep


Einsog kannski flestir vita þá er þetta byrjunin á laginu Fix You með Coldplay. Það er fáránlegt hvað þetta lýsir gengi okkar á Evrópumótinu útí Grikklandi. Við reyndum okkar besta, en vorum engan veginn nógu sannfærandi. Við unnum Evrópumeistarana (draumur allra að vinna evrópumeistarana með Íslandi), s.s. Frakkland, en héldum okkur ekki uppí A-deild. Haffi var alltaf svo þreyttur en gat aldrei sofið útaf svörtu mönnunum sem skrifuðu skilaboð á speglana og hótuðu honum. En svona er lífið :)

En ferðin var samt helvíti góð bara. Nenni ekki að vera að fara mikið í details. Ég kom hvítari heim frá Grikklandi en ég var þegar ég fór út. Ástæðan er sú að við máttum ekki vera í sólbaði á daginn vegna orkutaps og eitthvað bull. Hitinn fór hæst í 39°C og var mjög erfitt að þurfa að sitja bara inni að spila HM2006 í Playstation 2. Við spiluðum HM leikinn svo mikið að ég varð heimsmeistari. Við héldum mót og maðurinn sem kann ekkert í Playstation tók mótið og skeindi því. öhs!

En ég verð svo að segja frá minni lengstu vöku samfleitt. Við vöknuðum á fimmtudagsmorgun klukkan 04.30 að íslenskum tíma. Spiluðum svo seinasta leikinn okkar klukkan 07.00 að íslenskum tíma. Eftir leikinn var bara haldið í bæinn og fengum við okkur únó servesa þar sem við höfðum fengið leyfi til að gera það. Svo var bara vakað og rölt í bænum í rólegheitunum og svona, í 37°C hita, ekki þægilegt. klukkan 16 að íslenskum tíma héldum við uppí rútu og keyrðum á hinn leikstaðin sem var í borg sem heitir Almeida, þar var úrslitaleikurinn fyrir framan 2000 manns. Við horfðum á kvikyndið og sáum liðið sem við unnum með 12 stigum í riðlakeppninni vinna mótið. Eftir leikinn fórum við í rutu til Aþenu til að ná flugi til Englands. Rútuferðin tók 5 tíma og var lítið sem ekkert hægt að sofa þar. Við flugum svo til Englands og var hægt að fá sér 10 mínutna nibb annað slagið, en samt ekki mikið. Við vorum komnir til Englands klukkan 04.00 að íslenskum tíma og því búnir að vaka í sólarhring. Eftir þetta tók 6 klukkutíma bið við á Stansted flugvellinum og það leið líkt og 3 dagar. En svo lentum við á Íslandi klukkan 15.00 og allir búnir að segjast ætla að beila á djammi um kvöldið sökum þreytu. En annað kom á daginn, það fór enginn að sofa og var farið strax í að hita upp fyrir djammið. Siggi var hinsvegar búinn á því og fór bara heim að sofa. Hann var því eini sem helltist úr djammlestinni af þeim sem höfðu plön fyrir kvöldið. Við fundum samt mann í hans stað í kringlunni, það var enginn annar en Ólafur Torfason og ekki gerði hann djammið leiðinlegt. Ég hinsvegar var orðinn frekar slappur og sofnaði snemma ásamt Rúnari félaga mínum, enda búnir að vaka í næstum því tvo sólarhringa þegar líkaminn sagði stopp, nánar tiltekið 46 klukkustundir.

Núna er ég hinsvegar kominn á Ísafjörð aftur eftir næstum því Tveggja mánaða fjarveru og ég get ekki sagt annað en að bærinn sé búinn að breytast nokkuð. Komin ný bensínstöð og læti.. allt að gerast! En svo er bara að mæta á ballið í kvöld og fagna því að Tóti Frændi sé mættur á svæðið.. sé ykkur öll þá :)


Ţórir Guđmundsson

ENGLAND OG GRIKKLAND!

15. júlí 2006 klukkan 16:23
Góðan daginn gott fólk. Ég er að fara út á eftir. Fljúgum til Englands á eftir og gistum þar eina nótt og fljúgum svo til Grikklands klukkan 6 á morgun. Þannig að þetta verður mitt seinasta blogg þangað til ég kem heim, sem verður held ég 28. júli.. En allavega peace out og skemmtið ykkur á klakanum yndislega :)
Ţórir Guđmundsson

Ný Síđa!

14. júlí 2006 klukkan 03:36
Síðan sem mun tröllríða bloggheiminum innan skamms er orðin að veruleika. Bloggin koma allstaðarað úr heiminum. Spánn, Ísafjörður, Reykjavík og Keflavík. Ég verð fulltrúi ísafjarðar, atvinnumaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson mun vera fulltrúi Spánverja, eða réttara sagt Kanarí-eyja. Og svo má ekki gleyma Brynjari Björns sem mun blogga fyrir borgarbúa og drengurinn sem er orðinn frægur um allt land fyrir að hafa troðið yfir Sigga stóra, og ekkert lítið heldur hefði Siggi bara átt að fara heim, eða allavega hætta með stóru orðin um að enginn gæti troðið yfir hann! Allavega er það Þröstur Leó Jóhannesson..

http://blog.central.is/grillidather !!!

ég verð samt ennþá með þessa síðu.. jafnduglegur í framtíðinni að blogga og ég er búinn að vera!
Ţórir Guđmundsson

Kettir eru óféti!

12. júlí 2006 klukkan 02:26
Jæja. Ég hata ketti. Kettir eru ógeðslegir. Mig hefur alltaf langað að keyra "óvart" yfir kött en það hefur aldrei orðið neitt úr því útaf því að það eru alltaf einhverjir með mér sem vilja ekki að ég geri það. Svo hef ég það eiginlega ekki í mér að gera það, því það er bara illska að gera það og ég er ekki nógu harður í að gera svoleiðis. En aðalástæðan fyrir því að ég hata ketti meira núna en áður er mjög gild. Það kom eitt svona óféti inn til systir minnar á meðan við vorum sofandi, réðst inní búr uppáhaldspáfaguksins hérna á heimilinu og tók hann í kjaftinn og hljóp síðan aftur út. Ekki nóg með það heldur skildi hann allt eftir í rústi eftir sig, matarboxið hjá páfagaukunum á gólfinu og allt útum allt. Einnig er Kíkí núna ein á báti með átta egg í varpkassanum og enginn Doddi til að hjálpa henni við að ala kvikyndin upp. Þetta er sorglegt. Ég mun keyra yfir þennan kött ef ég sé hann því systir min er búin að lýsa honum fyrir mér. Hann ætti að passa sig. En RIP Doddi :(!

En það er farið að styttast alveg rosalega í Grikklandið. Við förum út til Englands á laugardaginn og gistum eina nótt þar. Síðan höldum við til Aþenu með flugi sem tekur eitthvað um 5 tíma held ég. En við spilum í borg Ólympíuleikanna og þurfum að fara þangað með rútu í einhverja 6 tíma held ég beint eftir flugið. Shit, það verður langt og leiðinlegt ferðalag en vonandi þess virði.
En þetta kostar alveg helling og ef einhver þarna úti vill styrkja mig um peninga er það vel þegið. Reikningsupplýsingarnar mínar eru hérna: KT - BANKI - HB - RKN (2503882339 - 1128 - 26 - 002630) Koss

Áðan fór ég með Herði atvinnumanni í sund og svo á körfuboltaleik. Leikurinn var á milli U-18 landsliðs kvenna og U-16 landsliðs kvenna. Það kostaði 1500 krónur inn og er það alltof mikið finnst mér, enda týmdum við því ekki. Atvinnumaðurinn náði að daðra við konurnar í miðasölunni þannig að við fengum miðana á 500 kr stykkið og auðvitað þurfti ég að splæsa á atvinnumannin. En ég sé eiginlega ekki eftir því að hafa farið þarna. Þetta U-18 landslið er alveg rosalegt, þvílík rosaleg fegurð í því. Ussuss..

Svo er eitt lag á FM núna sem ég er að fíla í tætlur, en ég veit ekki hvað það heitir. Það er geðveikt töff viðlagið í því, einhver svona taktur. Veit einhver hvaða lag þetta er? Endilega segja mér !

En ég er farinn að glápa á TV-ið, enda ekki mikið annað að gera hérna í Reykjavík. Þvílíkt skítapleis. Nenni ekki að vera hérna og get ekki beðið eftir því að komast heim á Ísafjörð. Langflottasti og besti bærinn :)
Ţórir Guđmundsson